Gunnar Nelson Instagram – ÚTGARÐUR ER OPINN!
Síðasta föstudag var nýi salurinn okkar formlega vígður með skemmtilegri æfingu. Drukkstofa Óðins hefur því sagt sitt síðasta. Drykkjarglösum hefur verið lagt og lóðin tekin upp í staðinn.
Nýir styrktar- og þrektímar hófu því göngu sína í morgun þar sem notast er við handlóð, stangir, medicine bolta, þrektæki og eigin líkamsþyngd á fjölbreyttum hraða. Til að byrja með verðum við með þrjá tíma á dag á virkum dögum og svo tvö á laugardögum en annars verður salurinn opinn fyrir þá sem vilja æfa sjálfir. Þess má geta að Mjölnir hefur sótt um CrossFit affiliation og er það í ferli.
Fyrsta grunnnámskeiðið í salnum fór fram um helgina og verður næsta námskeið auglýst von bráðar. Það þarf þó ekki að klára grunnnámskeið til að mæta í tímana og hvetjum við meðlimi okkar til að prófa nýju tímana! Auk þess er hverjum sem er heimilt að koma og prófa frítt á næstu vikum.
Í salnum er allt til alls! Við erum með Monster Lite Wallmount, frístandandi S-4 hnébeygjurekka, 20 kg Rogue Ohio Bar lyftingarstangir, 15 kg Rogue Bella Bar lyftingarstangir, 10 kg Rogue Junior Bar lyftingarstangir, Rogue sippubönd, teygjur og Medicine bolta. Auk þess erum við með frábær tæki; 8 AssaultBike Classic, 8 C2 róðravélar, 2 C2 SkiErg, Abraham Rogue GHD, ásamt C2 BikeErg og Assault Air Runner.
Útgarður nefndist heimili Útgarða-Loka, fjölkunnugs jötuns í norrænni goðafræði. Þrumuguðinn Þór sem við könnumst aðeins við hélt til Útgarðs ásamt fylgisveinum sínum. Þar lét Útgarða-Loki þá þreyta hinar ýmsu þrautir sem allar reyndust þeim um megn. Litlu mátti muna að þremenningarnir hefðu leyst þrautirnar en það reyndist ómögulegt þar sem Útgarða-Loki beitti brellum og sjónhverfingum.
Í okkar Útgarði muntu finna hinar ýmsu þrautir og þrekraunir en engum brellum eða sjónhverfingum beitt. Þess í staða munum við hjálpa þér að leysa þrautirnar eftir fremsta megni og skiptir mestu máli að ÞÚ mætir og gerir þitt allra besta.
#mjolnirmma #crossfit #oly | Posted on 25/Apr/2022 18:22:49



