Guðrún Ýr Eyfjörð Instagram – GDRN og Magnús Jóhann – Leika fjögur lög á tónleikum, er ný stuttskífa úr okkar smiðju sem verður einungis aðgengileg á 10 tommu svartri vinylplötu sem er gefin út í takmörkuðu upplagi. Öll eintök eru árituð og númeruð.
A hlið plötunnar inniheldur Brúðkaupslagið sem Todmobile gerðu frægt og Hvað er ástin, sem GDRN söng eftirminnilega í leiksýningu Þjóðleikhússins, Shakespeare verður ástfanginn.
B hliðin inniheldur tvö lög eftir Tómas R Einarsson. Stolin Stef og Hjarta mitt, sem er samið við texta Halldórs Laxness.
Pantanir í gegnum Shopify! Hlekkurinn er í bio!
Ljósmynd: Eva Schram Hönnun: Arnar Ingason Hljóðritun & hljóðblöndun: Bergur Þórisson | Posted on 18/Dec/2023 23:37:44



